Færsluflokkur: Bloggar

Besti flokkurinn hefur dælt fé í Bíó Paradís

IMG_3755

Besti flokkurinn  hefur haldið mikið upp á Bíó Paradís frá því hann komst til valda. Alls hefur þetta kvikmyndahús fengið styrki frá borginni upp á 36,5 milljónir árin 2010 - 2013. Og Besti flokkurinn hefur jafnframt tryggt kvikmyndahúsinu 29 milljónir á næstu tveimur árum (14,5 milljónir árin 2014 og 2015). Þessu til viðbótar á nú að færa þeim þessar 8 milljónir í stuðning við kvikmyndahátíð.

Dekrið við þetta kvikmyndahús ætlar að reynast skattgreiðendum dýrt. Á sama tíma heldur borgin uppi starfsemi Tjarnarbíós, þar sem einnig má sýna kvikmyndir, og ríkið heldur úti Bæjarbíói. Allur þessi stuðningur við miðil sem engan stuðning þarf til sýningar - nálgast má kvikmyndir með ódýrum og auðveldum (löglegum) hætti án aðkomu hins opinbera. En óvirðing stjórnmálamanna við annarra manna fé lætur ekki að sér hæða.


mbl.is Riff var ekki lengi í (Bíó) Paradís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokað á úthverfin, lokað á fyrirspurnir

„Hér varð hrun" ætlar að duga stjórnmálamönnum út í eitt þegar kemur að afsökunum fyrir slökum rekstri, hárri skattheimtu, eða bara almennu dugleysi.

Jón Gnarr og borgarstjórnarmeirihlutinn er hér engin undantekning. Ef fyrirspurnir hefðu verið heimilar á borgararfundi fyrir íbúa Úlfarsársdals hefði kannski mátt spyrja hann af hverju hann miði við árið 2008 þegar hann talar um að tekjur Reykjavíkurborgar hafi dregist saman. Hvers vegna leyfist honum það sem engum öðrum dettur í hug; að telja 2008 eðlilegt viðmiðunarár. Allir venjulegir borgarar hafa fyrir löngu áttað sig á að 2008 var skelfilegt bóluár, sem vonandi kemur aldrei aftur. Samdrátturinn er ekki meinið - bólan var meinið, samdrátturinn afleiðingin.

Hvar standa tekjur Reykjavíkurborgar í dag miðað við 2004, 2005 eða jafnvel 2006?

Hvers vegna eiga skattgreiðendur að fella tár yfir því hversu líf Jóns Gnarr og annarra stjórnmálamanna hefur verið erfitt? Ekki borga þeir óreiðuna, hvorki fyrir né eftir hrun. Þeir fara ekki með eigið fé og það sést svo sannarlega. Af hverju er ekki útskýrt hvernig borgin hafði efni á að kaupa Alliance húsið, Perluna, byggja og borga fyrir Hörpu í 35 ár, endurnýja Tjarnarbíó og eyða í fjöldamörg áhugamál fárra á kostnað fjöldans, þegar skorin er niður fyrirhuguð uppbygging í nýju úthverfi? Hvers á það fólk að gjalda?

Það verður ekki útskýrt - því það hefur verið skrúfað fyrir fjárfestingar fyrir venjulegt fólk og skrúfað fyrir möguleika þess að spyrja borgarstjórann hverju það sæti.

 


mbl.is Erfitt að horfa framan í reitt fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband